157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[19:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið. Það er mjög áhugavert að kynna sér bakgrunn þessara reglna. Nú er þingheimur þess meðvitaður að ég er ekki þingmaður og sit hér í skjóli meiri hluta Alþingis og þess vegna — ja, kannski ekkert sérstaklega þess vegna en alveg örugglega líka þess vegna tek ég mjög alvarlega að það er á endanum Alþingi sem hefur fjárveitingavaldið og það er einungis mitt að gæta þess að fara eftir tilmælum Alþingis. Ég hjó eftir því í svari hv. þingmanns að hann fjallaði um varasjóði einstakra málefnasviða. Mig langar að spyrja hvort hann deili áhyggjum mínum af því að mjög margir varasjóðir mjög víða myndu búa til aukinn freistnivanda og ákveðin vandamál í að geta með fullu sagt að Alþingi raunverulega setji þessa ramma frekar en að þeir séu þá einhvern veginn meira túlkanlegir af ráðherrum.

Síðan langar mig að fylgja aðeins eftir aganum en þar þarf raunar að líta lengra aftur en ég hygg að þingferill hv. þingmanns nái. Ég held að það hafi verið kollegi hans og fyrrum fjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, sem kom rammasetningu ríkisfjármála fyrst á dagskrá þó að langan tíma hafi tekið að innleiða hana. Telur hv. þingmaður að þessi varasjóðaleið sé ekki líka á einhvern hátt pínulítið varasöm þegar kemur að þeim sjónarmiðum sem þar liggja til grundvallar?