157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[20:04]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóða yfirferð yfir þetta mál. Það er svo sem margt í þessu, eða sitthvað, sem hægt er að spyrja um. Mig langar í fyrsta lagi að spyrja um nýtt ákvæði í þessum hlutdeildarlánapakka sem hæstv. ráðherra fór yfir og varðar umsóknir þeirra sem hafa ótímabundið dvalarleyfi. Hér er gert nýtt skilyrði að umsækjandi skuli hafa ótímabundið dvalarleyfi og er vísað í tvo úrskurði sem úrskurðarnefnd velferðarmála hefur fellt. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé raunverulega þannig, a.m.k. ef marka má þessa tvo úrskurði, að hlutdeildarlán hafi verið veitt til þeirra sem hafa ekki ótímabundið dvalarleyfi hér, heldur jafnvel til umsækjenda um dvalarleyfi hér á landi? Það hlýtur a.m.k. að vera úr því að úrskurðir féllu í tveimur málum. Þá langar mig að spyrja hvort hæstv. ráðherra geti upplýst þingið um það hvort brögð séu að því eða séu dæmi um fleiri slíkar veitingar til þeirra sem ekki hafa dvalarleyfi.

Mig langar líka að spyrja hér varðandi gildistímann í þessu frumvarpi. Það er gert ráð fyrir því að lögin öðlist gildi 1. janúar næstkomandi. Málinu verður vísað til hv. velferðarnefndar og þar hafa verið uppi, síðast á fundi í morgun, vangaveltur um að fá gesti vegna málsins strax á mánudaginn. Við erum hér að ljúka fjárlagaumræðu. Nú velti ég því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra fallist á það sjónarmið, í ljósi þess að hlutdeildarlánin hafa verið óvirk um nokkurn tíma — skiptir nokkru máli þótt það tefjist um einn eða tvo mánuði?