157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[20:07]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir góða fyrirspurn. Svarið er já. Það hafa því miður, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, eftir að hafa séð þessi dæmi sem úrskurðarnefndin hefur fjallað um, verið brögð að því að einstaklingar sem hafa jafnvel verið hér í skamman tíma hafi dottið inn í einhverja glufu í þessu kerfi sem við erum nú með þessum lögum að girða fyrir. Hversu mikið umfangið er, ég get ekki svarað því. Ég held að ég geti fullyrt að þetta umfang sé ekki mikið en ein úthlutun finnst mér einni úthlutun of mikið. Ég mun skoða það enn frekar í ráðuneytinu mínu og spyrja betur út í það hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem er með allt svona á sínum snærum. En því miður þá er það svo.

Svo er það nú seinni hlutinn hvað gildistímann varðar. Ég treysti bæði hv. velferðarnefnd og þingheimi öllum til að vinna málið bara eins og kostur er. Við erum ekki að hrópa eitthvað hátt en við vitum hvað það skiptir miklu máli. Við erum búin að ákveða þetta fjármagn. Það skiptir miklu máli að við getum hratt og örugglega komið með málið til afgreiðslu. Ég geri ekkert veður út af því þegar verið er að vanda til verka, alls ekki. Ég treysti því að þetta sé jákvætt og muni fá hraða og örugga meðferð í velferðarnefnd. Ég veit að hv. þingmenn leggja sig fram þar um að koma þessu sem fyrst til atkvæðagreiðslu hjá okkur í þinginu.