157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

húsnæðismál.

306. mál
[20:09]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég nefni þetta bara um gildistökuna vegna þess að við þingmenn höfum knappan tíma þegar fjárlagaumræðan stendur sem hæst. Það eru örfá brýn dagsetningarmál sem liggja fyrir en munu alveg tvímælalaust kalla á mjög mikla og ítarlega umræðu hér í þingsal. Ég fæ ekki séð að þetta mál geti runnið í gegnum hv. velferðarnefnd, sem á auðvitað að hafa lokið störfum á þessum tímapunkti. Ég tel að það væri til velfarnaðar fallið fyrir málið að fá umsagnir víða að til að ræða þetta. Ég bendi á að þetta úrræði hefur verið óvirkt um nokkurt skeið. Nú fer í hönd jólamánuðurinn þannig að ekki eru margir að leita eftir hlutdeildarlánum í þessum mánuði. En ég tel ekki hundrað í hættunni að þetta mál fái vandaða umfjöllun í velferðarnefnd.

Að því sögðu tek ég undir margt í þessu frumvarpi og ég held að með því sé verið að bæta mjög hlutdeildarlánakerfið, einkum með því að gera það minna eftirspurnarhvetjandi og koma því frekar inn á framboðshliðina. Þessar breytingar eru til þess fallnar að auka framboðið á húsnæði. Það er mergurinn málsins þessa dagana.

Mig langar að spyrja varðandi eftirspurnina í þessu. Það kemur mér á óvart að lesa um það að heilt á litið séu hlutdeildarlánþegar að meiri hluta til barnlaus heimili. Það kemur á óvart. Kann hæstv. ráðherra einhverja skýringu á því? Telur hún að þessar breytingar verði til þess að breyta samsetningu lánþega í framtíðinni?