orð forseta.
Virðulegur forseti. Mig langar til að vísa í orð hæstv. forseta frá því að þing hófst hér í haust, með leyfi forseta:
„En ég segi við ykkur, hv. þingmenn, að leiðina frá þeim stað sem þingið var á 14. júlí síðastliðinn verðum við að feta saman. Ég er meðvituð um að sem forseti þarf ég að endurvinna traust margra í þessum sal og að því ætla ég að vinna af heilindum. Ég bið líka alla hér inni að axla sameiginlega ábyrgð á því verkefni að koma þingstörfunum í skilvirkara horf. Það er sameiginlegt verkefni okkar og ég ætla að leyfa mér að halda því fram að það myndi mælast vel fyrir hjá kjósendum okkar ef það tekst.“
Frú forseti. Það eru ótrúleg vonbrigði að forseti skuli ekki hafa stigið hér fram í upphafi þingfundar og beðist afsökunar á þeim orðum sem féllu hér síðastliðinn föstudag. Það bíða allir þingmenn í salnum eftir því að forseti stígi upp og biðjist afsökunar á orðum sínum.