157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

siðareglur Alþingis.

[13:06]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Við þurfum líka að vera nógu stór til að geta tekið afsökunarbeiðni gilda. Hún sá að sér augljóslega vegna þess að hún upplifði að það væri miður að hún hefði látið þessi orð falla. Ég ætla ekki að fara í einhver smáatriði eins og hvar þessi orð féllu eða undir hvaða kringumstæðum. Við erum öll mannleg og ég held að hæstv. forseti hafi nú gefið það bara frekar sterklega til kynna þegar hún sá að sér og baðst afsökunar. Ég held að það segi allt sem segja þarf um að þessi orð hefðu ekki átt að falla með þessum hætti, hvort sem er í hliðarsal eða annars staðar eða hvar svo sem þetta átti sér stað. Einstaklingurinn hefur beðist afsökunar. Tökum því. Hún gerir það með einlægum hætti. Augljóslega þurfum við að gæta orða okkar. Ég held að við þurfum ekkert að fara nánar út í það. Það á við okkur öll. Ég tek afsökunarbeiðni hennar sem einlægri og ég vona að það eigi við um þingheim allan. Það er okkur öllum hér fyrir bestu.