157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

bygging flugstöðvar í Reykjavík.

[13:08]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. „Við erum öll mannleg“, sagði hæstv. forsætisráðherra. Það getur verið mannlegt að gleyma því að svara spurningum en ég hvet hæstv. forsætisráðherra að svara spurningum hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur um virkni og mikilvægi siðareglna. Það kom ekki hálft svar um það.

Ég ætlaði reyndar að beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra um annað. Í samgönguáætlun sem hæstv. forsætisráðherra sagði sérstaklega að yrði faglega unnin er auðvitað margt í og margt sem sá sem hér stendur kannast mjög vel við. Mér sýnist að hún sé meira og minna uppfærð samgönguáætlun frá þeirri áætlun sem var gefin út 2023. Þar er fjallað um til að mynda uppbyggingu á flugstöð í Reykjavík og uppbyggingu flugvallarins í Reykjavík. Í markmiðum um öruggar samgöngur eða jákvæða byggðaþróun eða greiðar samgöngur er fjallað um Reykjavíkurflugvöll og að „rekstraröryggi verði tryggt á meðan annar jafn góður eða betri kostur er ekki fyrir hendi“ — ég kannast við þessa setningu og ég held ég hafi samið hana í samskiptum við hv. þm. Dag B. Eggertsson á sínum tíma — og að það verði að mæta þörfum flugrekenda fyrir varaflugvelli í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum og að byggja upp traust net. Síðan er fjallað um, sem er jákvætt að okkar mati, að setja inn fjármuni til að byggja upp flugstöð með svokallaðri samvinnuleið, það væri samvinnuverkefni, og að strax á næsta ári verði unnin þarfagreining með flugrekendum og flugafgreiðsluaðilum. Ég býst við að sú greining liggi fyrir þar sem að þessu verki hefur verið unnið í þó nokkur ár. Gert er ráð fyrir að framkvæmdatími gæti verið 24 mánuðir og til þess eru settir peningar.

Við í Framsókn erum auðvitað glöð með það að það sé verið að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi, það er mjög jákvætt. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Er meiri hlutinn í Reykjavík einn af þeim aðilum sem koma að þessu samvinnuverkefni? (Forseti hringir.) Ég spyr í ljósi yfirlýsinga og stefnu Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg til margra ára og áratuga. (Forseti hringir.) Hefur hún breyst með þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) samþykkti hér með svo ríkum hætti í síðustu viku að væri faglega og vel unnin?

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar enn og aftur að virða ber ræðutíma.)