157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

bygging flugstöðvar í Reykjavík.

[13:10]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hæstv. innviðaráðherra er reyndar hér í salnum en ég svara fús þessari spurningu. Mér þykir gott og jákvætt að það sé ýmislegt gott sem hafi komið fram í fyrri samgönguáætlun, enda er ekki tilgangur þessarar samgönguáætlunar að breyta öllu. Það er margt sem er vel gert og ég held að við vitum það alveg hér inni að átök um samgönguáætlun myndast kannski frekar milli kjördæma og oft innan þingflokka heldur en endilega þvert á flokka. Þetta er einfaldlega þannig plagg, þetta snýst um forgangsröðun dýrra framkvæmda og það er fullkomlega eðlilegt að það sé samfella í verkefnum. Við erum að virða og ætlum okkur að virða gott samkomulag sem hv. þingmaður er hér að ræða um og engar forsendur fyrir því að breyta því þegar kemur að stöðu Reykjavíkurflugvallar. Því er einmitt haldið áfram til haga og gefin vissa fyrir því að á meðan völlurinn er þarna og við höfum ekkert útsýni um annað á þessum tímapunkti, ekki frekar en síðasta ríkisstjórn, þá verður honum sinnt. Þessi aðstaða verður bætt. Þetta eru mikilvægar samgöngur hér fyrir allt landið og við höfum engar aðrar forsendur en að styðja við þann völl. Ég get ekki séð að eitthvað hafi breyst í því samkomulagi sem kemur í veg fyrir að það verði virt, eins og ég segi, það hafa ekki orðið grundvallarbreytingar í samgönguáætlun. Það samkomulag sem kom til er enn þá til staðar og ég hef ekki heyrt annan tón í því og það er enginn að ætlast til þess að hér verði byggður annar völlur áður en hann er fundinn, áður en hann er hannaður og áður en forsendur eru fyrir því að vera með slíka framtíðarsýn. Við eigum því bara á meðan þetta er, sem verður í býsna langan tíma, að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll, fara vel með þetta svæði og tryggja þjónustu.