bygging flugstöðvar í Reykjavík.
Frú forseti. Eins og ég segi hafa forsendur varðandi Reykjavíkurflugvöll, líkt og hv. þingmaður vakti sjálfur athygli á, ekki breyst milli þessara áætlana. Það var alltaf útgangspunkturinn á síðasta kjörtímabili, m.a. þegar hv. þingmaður gerði þetta samkomulag við borgina, að það væru ekki forsendur fyrir því að hrófla við vellinum vegna þess að það væri ekki búið að finna annan stað fyrir hann og við vitum að þó að sá staður yrði fundinn á morgun þá eru áraraðir í það. Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta er vinsælt málefni til að ala á klofningi, þetta er vinsælt málefni til þess að slá hér einhvern veginn upp en horfumst bara í augu við að við erum meira sammála um þetta mál en við höldum eins og sakir standa. Flugvöllurinn er ekkert á förum á meðan annar völlur er ekki staðfestur og það liggur alveg fyrir. Síðan þurfum við bara að vinna með það þegar það mat liggur fyrir. Varðandi umhverfismatsskýrslu þá vil ég vísa því áfram til innviðaráðherra til svara en ég legg bara áherslu á að þetta þing (Forseti hringir.) hlýtur að vilja klára samgönguáætlun. Það hefur ekki gengið í áraraðir. Við skulum taka okkur saman, gera þetta vel (Forseti hringir.) og klára þetta.