breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Þetta svar var svo fyrirsjáanlegt að ég var tilbúin með svar við þessu svari hæstv. fjármálaráðherra. Því er til að svara að það er algjörlega ólíku saman að jafna. Ákvæði í lögum um virðisaukaskatt þegar vísað er til verulegra hagsmuna, þar er um að ræða aðstæður þegar gjaldandi sjálfur óskar að eigin frumkvæði eftir leiðréttingu eða endurákvörðun álagningar, þar er ekki verið að vísa til þess þegar skattyfirvöld hafa verið gerð afturreka með niðurstöðu yfirskattanefndar eða dómstóla um skattákvörðun. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi látið fara fram eða staðið fyrir mati t.d. á því hvort þetta standist EES-samninginn í ljósi þess sem ég nefndi hér áðan. Mál af svipuðum toga hafa verið tekin fyrir bæði af Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstólnum þar sem það er alveg fortakslaus skylda skattyfirvalda að endurgreiða ofgreidda skatta. Telur hæstv. fjármálaráðherra ekki í þessu ljósi tilefni til þess að taka málið aftur inn í nefnd eða koma með breytingartillögu við málið þegar það kemur til 3. umræðu?