157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

[13:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir spurninguna og að minna mig á fyrirsjáanleika minn og það hvað ég kem fólki lítið á óvart, sem ég tel raunar einn af mínum kostum. Ég held að það sé ákveðinn misskilningur í túlkun á þessu. Þetta er heimild sem raunverulega á að vera til að bregðast við breytingum sem gætu verið vegna breytinga á lögum en líka vegna úrskurða, til að tryggja að þeir sem hafa fengið álagningu geti óskað eftir endurupptöku. Nú gleðst ég auðvitað algerlega djúpt í hjartanu yfir vörn hv. þingmanns á EES-samningnum og sé að við erum báðir aðdáendur þess ágæta samnings. En þessi lög, eins og önnur lög, hafa auðvitað farið í gegnum það nálarauga að vera yfirlesin með tilliti til hans af dómsmálaráðuneytinu.