vinnubrögð ráðherra.
Frú forseti. Á undanförnum dögum og vikum hefur skapast veruleg óvissa á framhaldsskólastiginu í ljósi þess að ráðherra hefur ákveðið að endurnýja ekki ráðningar tveggja skólameistara framhaldsskólanna. Hæstv. forsætisráðherra hefur lýst því yfir hér að hún hafi verið upplýst um að ekki ætti að endurnýja ráðningu skólameistara Borgarholtsskóla. Í því ljósi vil ég spyrja hvort hæstv. forsætisráðherra hafi einnig verið meðvituð um að ekki ætti að endurráða skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, sem reyndar sjálfur fékk upplýsingar um slíkt í fréttum.
Staðan sem blasir við er fullkomin óvissa. Skólasamfélagið virðist ekki fá nein skýr svör. Kennarar, nemendur og foreldrar standa núna frammi fyrir óútskýrðum og óútfærðum stjórnsýslubreytingum. Það virðist vera sem ráðherra sé að taka ákvarðanir um að endurnýja ekki skipun skólameistara út frá fyrirhuguðum áformum um svæðisskrifstofur sem hæstv. ráðherra getur ekki svarað fyrir hvernig eigi að vera, hvar eigi að vera og með hvaða hætti. Í rauninni er hæstv. barna- og menntamálaráðherra að ráðast í vissar framkvæmdir sem framkvæmdarvaldið hyggst gera en er ekki búið að leggja fyrir hér á Alþingi, hvað þá að samþykkja. En þetta er því miður ekki einsdæmi hjá þessari ríkisstjórn, við höfum séð þetta áður; sem dæmi þegar félags- og húsnæðismálaráðherra ákvað að skipa ekki í stjórn Tryggingastofnunar því að ætlunin var að leggja stjórnina niður einhvern tíma þrátt fyrir að ekkert slíkt hefði verið samþykkt hér á Alþingi. Þau vinnubrögð voru gagnrýnd en engu að síður virðist forsætisráðherra standa með þeim aðgerðum. Það voru vinnubrögð sem hæstv. forsætisráðherra virtist a.m.k. blessa.
Því spyr ég hvað hæstv. forsætisráðherra finnst um þessi ófaglegu vinnubrögð gagnvart skólameisturum framhaldsskólanna, gagnvart skólasamfélaginu og gagnvart Alþingi. Hyggst ríkisstjórnin breyta hefðum er varðar endurráðningu embættismanna (Forseti hringir.) og þá væntanlega allra embættismanna? Hvað finnst hæstv. forsætisráðherra um að ráðherrar (Forseti hringir.) í hennar ríkisstjórn framkvæmi ákvarðanir sem hvorki eiga sér lagastoð né hafa hlotið (Forseti hringir.) þinglega meðferð? Telur forsætisráðherra þessi vinnubrögð fagleg?