vinnubrögð ráðherra.
Frú forseti. Hér er talað um hefðir og venjur. Embættismenn eru ekki æviráðnir eins og í gamla daga. Við skulum bara hafa það alveg á hreinu. Embættismenn eru ekki með lífstíðarráðningu. Það er fjöldi fordæma fyrir því að það sé farið í að auglýsa stöðu eftir að það liggur fyrir að það sé stutt eftir af skipunartíma og þarf ekki að lesa annað og meira í það en að embættismenn eru ekki með æviráðningu lengur. Auðvitað skiptir máli hvernig það er gert. Ég get alveg skilið að sú umræða geti átt sér stað vegna þess að þetta eru auðvitað erfið mál. Starfsmannamál eru alltaf flókin, en árið 2023 auglýsti sama ráðuneyti stöðu skólameistara MK, hið sama var gert 2019 þegar staða skólameistara í Fjölbrautaskóla Vesturlands var auglýst skilst mér, bara svo að það sé á hreinu. Ég átta mig hins vegar alveg á að þessi óvissa sem er núna til staðar, af því að það stefnir í ákveðnar breytingar, a.m.k. er alvarlega verið að íhuga þær breytingar, er óþægileg. Ég sýni því bara mjög mikinn skilning. Ein af aðalástæðunum fyrir því, varðandi þær stöður sem hér er um að ræða, að sú ákvörðun var tekin um að það yrði ekki sjálfkrafa endurnýjun er að það var ekki alveg vissa um það með hvaða hætti ráðningarsambandið yrði og fólk vildi bara vera heiðarlegt með það. Hvergi kom fram skilst mér, svo ég ítreki það, ég var ekki þátttakandi í þessu ferli, þetta er starfsmannamál á vegum menntamálaráðuneytisins, en mér skilst að hvergi í þessu ferli hafi komið fram að ekki hafi verið óskað eftir starfskröftum umræddra aðila. Ég ítreka því að ég átta mig á því að þetta geta verið erfið, stundum óþægileg mál og það er líka erfitt að ganga í gegnum breytingar. Þess vegna er oft ekki ráðist í breytingar (Forseti hringir.) en embættismenn eru ekki með æviráðningu. Þetta eru málefnalegar forsendur. Það hefur líka (Forseti hringir.) komið fram í fréttum að menntamálaráðherra hefur beðist afsökunar á því ef umgjörð þessarar ákvarðanatöku eða aðdragandinn hefði kannski getað verið upplýstur með aðeins öðruvísi hætti. Ég held að við ættum að hlusta á það.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar enn og aftur ræðutímann.)