vinnubrögð ráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið en erum við ekki bara komin á þann stað að spyrja okkur hvort það væri ekki betra að hæstv. ríkisstjórn og ráðherrar hagi sér og komi fram með þeim hætti að þau þurfi ekki endalaust að biðjast afsökunar á gjörðum sínum. Hæstv. forsætisráðherra hefur einmitt lagt áherslu á vönduð vinnubrögð, gagnsæi og opið samtal við þjóðina en staðreyndin er sú að þetta gerist allt á vakt hæstv. forsætisráðherra. Hún er upplýst um þessar ákvarðanir, hún hefur fingurinn á púlsinum í flestum, ef ekki öllum, stærstu ákvörðunum sem hér eru teknar. Það er alvarlegt þegar fólk fréttir það í fjölmiðlum að ekki eigi að endurnýja ráðningarsamband þess. Já, embættismenn eru ekki æviráðnir en yfirleitt er einhver ástæða fyrir því að embættismenn sem hafa sinnt starfi sínu vel eru ekki endurráðnir og hafa jafnvel ekki einu sinni fengið neinar ástæður þess efnis af hverju þeir eru ekki endurráðnir.
Hæstv. forsætisráðherra svaraði ekki spurningu minni varðandi það hvort hún hafi verið meðvituð um að ekki ætti að (Forseti hringir.) endurnýja ráðningarsambandið við skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum.
Ég vil einnig spyrja: (Forseti hringir.) Eru þetta þau vönduðu vinnubrögð og það samtal við þjóðina sem hæstv. forsætisráðherra hefur talað fyrir?