157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

vinnubrögð ráðherra.

[13:28]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég hafði enga aðkomu að þessu máli. Ég var ekki upplýst um þetta fyrr en búið var að tilkynna umræddum aðila um þetta. En það er auðvitað þannig um starfsmannamál, sem rata kannski ekki alltaf hingað beint inn, að það er oft ákveðið ferli. Það er ekki bara eitt samtal heldur mörg samtöl. Enn og aftur, ég hafði enga beina aðkomu að þessu máli, en mér skilst að það hafi enn þá verið samtöl í gangi, eins og hefur komið fram opinberlega, þegar þetta kemur í fjölmiðla. Ég vissi ekki af þessu áður en þessi upphaflegi fundur var haldinn. Ég var heldur ekki meðvituð um stöðu mála varðandi aðra skólameistara enda er aðalatriði málsins að það hafa verið skýrar ástæður sem hafa komið fram um að það sé ákveðið óvissuástand varðandi einstakar stöður á meðan við erum í þessu millibilsástandi. En þetta eru skýr rök, þetta er unnið faglega. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér áður, það er skipunartími og (Forseti hringir.) við erum öll meðvituð um það. En auðvitað skiptir máli hvernig staðið er að hlutunum.