157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

verk ríkisstjórnarinnar.

[13:34]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Talandi um verkin. Þingið er búið að vera í hægagangi hér í allt haust, það hafa nánast engin mál komið hingað inn. Þingfundir hafa verið að enda hér klukkan þrjú á daginn. Samgönguáætlun, sem átti að koma í október, hún átti að koma í nóvember, það er búið að halda blaðamannafund 3. desember og við munum ekki ná henni hér inn fyrir jól. Það er nú öll verkstjórnin. Fjárlögin komu tveim vikum of seint. Og stöðugleikareglan er fallin. Hún er kolfallin. Ég bara velti því fyrir mér að það er ekki einu sinni búið að taka hér inn útlendingafrumvarpið sem er búið að afgreiða úr nefnd og er þverpólitískur vilji fyrir að afgreiða. Hvar eru verkin, hæstv. forsætisráðherra? Ég spyr: Hvar eru verkin? Við bíðum og við erum búin að bíða í allt haust. Ég bara velti því fyrir mér: Eru þetta vinnubrögð sem hæstv. forsætisráðherra kallar sjálfur verkstjórn?