verk ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Lægsta verðbólga frá árinu 2020, fimm vaxtalækkanir á þessu ári, það er búið að helminga hallann. Þessi ríkisstjórn er ári fyrr ef ekki tveimur árum fyrr með það á stefnu sinni, sem hún mun standa við, að skila afkomunni á núlli. Þetta eru verkin á meðan minni hlutinn er fastur, pikkfastur í uppþotsmálum. Treystir sér ekki í að ræða neitt annað en dægurmálin sem rata beint í fjölmiðla en skila engum árangri fyrir land og þjóð, ekki frekar en ríkisstjórnin síðasta þar sem umræddir flokkar voru við völd. Verkin hafa talað, þau munu tala. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að halda okkur við efnið en þessi uppþotsmál eru ekki gera neitt og ekki nokkurn jákvæðan hlut fólk þarna úti, höfum það alveg á hreinu.