157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

viðbrögð við ákvörðunum ráðherra.

[13:38]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Þetta er ekki rétt sem hv. þingmaður heldur hér fram. Ég tók fram að ég hefði verið upplýst um þetta mál eftir að það var búið að tilkynna þessum aðila um að þessi leið yrði farin. Ég sagði aldrei neitt annað í þessu máli. Ég hef ekki beina aðkomu að því, ég hlutaðist ekki til um þetta mál. Ég var hér í óundirbúnum fyrirspurnum, m.a. í fjarveru hæstv. menntamálaráðherra, og svaraði fyrir þetta með upplýsingum sem ég fékk fyrir þann fyrirspurnatíma. Það að ég sagði að þetta hefði verið faglega gert var byggt á upplýsingum sem ég fékk eftir að málið rataði í fjölmiðla og það liggur fyrir að svona var málið statt. Gott og vel, ræðum þetta mál, en það er óþarfi að fara í útúrsnúninga og reyna að búa til eitthvað úr þessu sem ekki er. Það er sjálfsagt að ræða þetta, en aðkoma mín að þessu máli er fullkomlega ljós.