framhaldsskólar.
Frú forseti. Við ræðum hér mál varðandi inntöku í framhaldsskóla. Ýmislegt er ágætt í þessu máli en hér eru þættir og hér eru brautir sem verið er að stíga inn á sem grunnskólinn hefur sokkið ansi djúpt í og hér er framhaldsskólinn á sömu leið. Sérhæfing framhaldsskólanna minnkar, einsleitnin eykst, fjölbreytileiki skólanna sjálfra minnkar. Að draga úr vægi árangurs nemenda í grunnskóla hvað varðar inntöku í framhaldsskólana mun draga úr hvata barna í grunnskólum til að standa sig vel í námi. Hér er verið að opna gáttir fyrir fólk sem er vel stætt til að kaupa námskeið fyrir börnin sem hafa síðan áhrif á inntöku í framhaldsskólann. Þetta er mál sem eykur muninn á milli þeirra sem eiga og eiga ekki og geta og geta ekki. Það er algerlega óboðlegt að þetta mál fái að ganga fram hér þrátt fyrir að við höfum fært fyrir því sterk rök, minni hlutinn, að stöðva það og laga þær greinar sem skemma málið.