framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég vil við þetta tilefni koma hér upp og þakka kollegum mínum í allsherjar- og menntamálanefnd fyrir góða vinnu við þetta góða mál. Hér er á ferðinni eins konar tiltektarmál sem tekur á mörgum þáttum er snúa að framhaldsskólum og voru langflestar umsagnir um það afar jákvæðar. Við unnum sérstaklega þann kafla sem sneri að aðkomu nemendafélaga og samspili nemendafélaga og skólameistara. Ég er þakklátur fyrir þá vinnu sem átti sér stað í nefndinni þar sem við skerptum aðeins á því ákvæði milli þinga og tel ég að niðurstaðan hafi verið afar góð. Það er eiginlega erfitt að elta ólar við þær ræður sem voru fluttar hér, alla vega þá seinni varðandi það að hér sé verið að grafa gjörsamlega undan framhaldsskólakerfinu og nú eigi alls ekki að líta til námsárangurs nemenda. Þetta er náttúrulega ekki rétt. Staðreyndin er sú að að sjálfsögðu er námsárangur það sem er litið til sem meginþáttar þegar inntaka í framhaldsskólana er skoðuð en í þessu frumvarpi er skólameisturum veitt heimild til að horfa til fleiri þátta þegar það á við.