157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[13:47]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ég er afskaplega ánægð með að við skulum vera komin á þennan tímapunkt. Auðvitað verður námsárangur alltaf aðalatriðið þegar sótt er um nám í framhaldsskóla. Það segir sig sjálft. En það er árangur í svo mörgu öðru í fari hvers barns og við erum að tala um heimild til að líta til fleiri þátta. Þetta er ekki alvarlegra en það. Ég er búin að vera afskaplega ánægð með hvernig þetta hefur gengið hjá okkur í allsherjarnefnd og vil þakka kollegum mínum þar fyrir samstarfið. Ég vil líka segja að það er mér mikill heiður að fá að vera framsögumaður þessa máls. En nú erum við komin að endapunktinum og ég er alveg handviss um að þetta verður mjög farsælt, bæði fyrir skóla og börn.