staða skólastjóra framhaldsskóla.
Frú forseti. Já, þessi mál varðandi framhaldsskóla landsins hafa heldur betur undið upp á sig á undanförnum dögum og skólameistarar jafnvel farnir að hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu. Þingflokkur Framsóknar óskaði eftir því núna á mánudaginn síðastliðinn að barna- og menntamálaráðherra, sem því miður er núna kominn í veikindaleyfi og við sendum honum batakveðjur, kæmi fyrir þingið og gæfi okkur munnlega skýrslu varðandi stöðu framhaldsskólastigsins og þessi áform hans um þetta nýja mögulega stjórnsýslustig sem við fáum ekki skýr svör um. Ég vil beina því til hæstv. forseta að hún beiti sér fyrir því að staðgengill hans komi fyrir þingið og veiti okkur upplýsingar svo við getum einmitt tekið umræðu um þetta mál á upplýstan hátt því hér virðist framkvæmdarvaldið vera komið svolítið fram úr sér, í rauninni byrjað að framkvæma eitthvað sem það hugsanlega ætlar að gera en löggjafinn hefur ekki gefið samþykki fyrir. Ég brýni hæstv. forseta til að beita sér í því máli.