157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

staða skólastjóra framhaldsskóla.

[11:11]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að hér sé ákall um umræðu um menntamálin. Ég held að við ættum að gera meira af því að ræða menntamálin hér á hinu háa Alþingi. Þetta eru einhverjar mikilvægustu stofnanir samfélagsins og við eigum að hafa metnað til að gera vel í menntamálum. Ég fagna þeirri umræðu.

Það var aðeins komið inn á það líka að fara rétt með staðreyndir og því vildi ég aðeins halda til haga ákveðnum rangfærslum sem hér hefur verið farið með. Annars vegar fullyrðingar um orsakasamhengi í aðdraganda þess að auglýsa stöður. Það kemur satt best að segja á óvart að hér séu flokkar, sem hafa oft haldið innblásnar ræður um of mikil réttindi opinberra starfsmanna, að mótmæla því að verið sé að auglýsa stöður sem eru einmitt inni í þessum lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hér hefur einnig verið komið inn á það að forsætisráðherra hafi einhvern veginn verið með í ráðum við þessa ákvörðunartöku. Það hefur aldrei komið fram og forsætisráðherra kom því skýrt á framfæri hér í svari við óundirbúinni fyrirspurn hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ef fólk vill vera í fundarstjórn og fara með rangfærslur (Forseti hringir.) þá er það áhugavert, en ég fagna umræðu um menntamál og vona að hún komi sem fyrst á dagskrá.