staða skólastjóra framhaldsskóla.
Virðulegi forseti. Það er með ólíkindum að fylgjast með stjórnarliðum koma hér með eina aumustu málsvörn sem maður hefur heyrt. Það vita allir hvað gerðist. Einn aðili er tekinn út og sagt: Við ætlum auglýsa stöðuna þína. Eðli máls samkvæmt verður mikil umræða, út af forsögunni. En þá bara sjá aðrir í fjölmiðlum annað en það sem þeir höfðu fengið að vita; það er ekki auglýst og þeir eru allt í einu komnir á sama stað. Þetta kallar eðlilega á það að þingið skoði hvað sé þarna á ferðinni. Ég vek athygli á því að hæstv. forsætisráðherra,sagði 4. desember, með leyfi forseta.
„Varðandi það hvort ég hafi verið upplýst um að þetta stæði til þá vissi ég af því“ — þá vissi ég af því — „en ég sé ekki ástæðu til þess að forsætisráðherra sé að grípa inn í faglega ákvörðun, bara vegna mögulegrar ásýndar í pólitíkinni.“
9. desember segir hæstv. forsætisráðherra: „Ég var ekki upplýst um þetta fyrr en búið var að tilkynna umræddum aðila um þetta.“ (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Þetta kallar á svör, þessi mótsögn hjá hæstv. forsætisráðherra, annars vegar 4. desember og hins vegar 9. desember, því að þetta mál (Forseti hringir.) snýst um vald, hvernig menn nota vald og hvort það sé hér á ferðinni að menn séu að misnota vald.