157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

staða skólastjóra framhaldsskóla.

[11:18]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Bara til að hjálpa yður með fundarstjórnina og að leggja mat á þetta mál vildi ég taka undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem leiðrétti hér hv. þingflokksformann Samfylkingarinnar. Athugasemdirnar um framgöngu hæstv. forsætisráðherra í þessu máli snúa að ósamræmi í svörum. Annars vegar: Síðastliðinn fimmtudag, sem mun vera 4. desember, upplýsir hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson okkur um, sagði hæstv. forsætisráðherra að hann hefði verið upplýstur um þetta mál áður en ákvörðun var tekin og upplýstur um að það væri faglega unnið og þar af leiðandi kosið að grípa ekki inn í. Í gær hélt hæstv. forsætisráðherra því hins vegar fram að hann hefði ekki vitað af þessu máli fyrr en það varð fjölmiðlamál. Þetta fer ekki saman og í ljósi þess hversu mikill vandræðagangur er orðinn í kringum allt þetta, þessi skólameistaramál, [Hlátur í þingsal.] þá tel ég mikilvægt að þingið fjalli um þetta og við komumst til botns í málinu.