157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[11:40]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni málsins fyrir ágæta framsögu og yfirgripsmikla. Bara svona í ljósi þess að ég hef tilhneigingu til þess að hafa varann á mér þegar kemur að afgreiðslu alþjóðasamninga þar sem kveðið er á um einhverjar skuldbindingar á hendur Íslandi þá er hér verið að lögfesta ákvæði til að geta, ef ég skil þetta rétt, fullgilt einhvers konar nýjan framhaldssamning við hafréttarsamninginn frá 1982 sem vel að merkja hefur auðvitað þjónað íslenskum hagsmunum alveg prýðilega tel ég og ég tel reyndar að Ísland eigi mikið undir alþjóðasamstarfi af þessu tagi. Mig langar að spyrja hv. þingmann og framsögumann málsins hvort þessar skuldbindingar sem Ísland tekst á hendur með þessum viðbótarsamningi hafi verið að einhverju leyti rýndar með tilliti til möguleika á skapandi túlkunum sem er orðið algengt og nokkuð vinsælt að beita fyrir sig þegar kemur að þessum alþjóðasamningum. Hafa þessar skuldbindingar verið rýndar með tilliti til þess að einhver einhvern tímann í framtíðinni fari að leggja annað vægi eða annað mat á þær skuldbindingar sem þessi samningur kveður á um? Svo nefni ég bara, t.d. af því að hv. framsögumaður vék að skilgreiningum, að ég sé að hér er fjallað um erfðaauðlindir í þessu máli og það bundið þeim skilyrðum að þær séu bara nýttar í friðsamlegum tilgangi: Var það eitthvað sérstaklega rætt í nefndinni hvað það er nákvæmlega sem telst friðsamlegur tilgangur? Gæti sú skilgreining tekið breytingum í áranna rás?