157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:27]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Það er ekkert að undra að herra forseti hafi aðeins fipast því að við eigum auðvitað ekki almennt því að venjast að nefndir séu að flytja frumvörp. Það er algengara að það sé þá verið að flytja nefndarálit en það gerist þó einstaka sinnum. Ég vil líka geta þess að það hafa nú sumir stjórnsýslufræðingar og lagaspekúlantar bent á að það gæti ja, klesst svolítið á stjórnarskrána og þrjár umræður því að nú er nefndin að flytja frumvarpið og svo á nefndin að fara yfir frumvarpið og vera gagnrýnin á frumvarpið sem fram kemur og koma hingað með það inn í 2. umræðu og svo 3.

Hv. þingmaður gat þess að ráðuneytið hefði óskað eftir þessu þannig að mig þyrstir í að vita: Hvenær kom sú beiðni frá ráðuneytinu að nefndin myndi flytja þetta dagsetningarmál og hvað var því til fyrirstöðu að ráðherra sjálfur legði slíkt mál fram?