157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:33]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir framsögu á þessu frumvarpi sem kemur frá samgöngunefnd sem er óvenjulegt og er nú ekki um mörg slík frumvörp að ræða. Ég vil hvetja nefndir þingsins til að gera meira af þessu og einnig að hvetja nefndirnar til að koma þá frekar með efnismeiri frumvörp sem nefndirnar vinna sjálfar í staðinn fyrir að taka þetta hrátt eftir ráðuneytunum. Þetta er frumvarp sem kemur að sögn framsögumanns úr ráðuneyti. Ég myndi vilja spyrja hv. framsögumann örlítið frekar út í þetta. Það er nefnt þarna berum orðum að það séu tilgreindar framkvæmdir sem ekki koma fram í samgönguáætlun og þetta gefur heimild til að fara í þær þrátt fyrir 26. gr. hafnalaga sem kveður á um að það eigi ekki að fara í slíkar framkvæmdir nema það komi fram í samgönguáætlun. Það er svo sem ekkert við það að athuga nema það að ef þetta eru tilgreindar framkvæmdir, getur þá hv. þingmaður upplýst okkur um það hvaða framkvæmdir þetta eru? Ef það er of langt mál að telja þá myndi ég, sem óbreyttur þingmaður hér, vilja fá þennan lista. Hefði hann ekki átt að fylgja frumvarpinu þegar það kemur þarna inn? Ef þetta eru tilgreindar framkvæmdir þá hefði sá listi átt að fylgja frumvarpinu hingað inn í þingsal.