157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:39]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði í upphafi er um framlengingarmál að ræða. Það er ekki verið að leggja þetta fram núna, þetta var lagt fram í fyrra líka, þannig að þetta mál er að lifa á milli ára vegna þess að samgönguáætlun hefur ekki verið til staðar. Við erum auðvitað að horfa til þeirra atriða sem er að finna í væntanlegri samgönguáætlun þannig að hægt sé að halda áfram framkvæmdum á árinu 2026. Við vitum ekki hvenær við klárum hana. Mínar væntingar eru að við klárum samgönguáætlun fyrir vorið. Einhverjir hafa einhverjar aðrar væntingar. Ef samgönguáætlun dregst fram á haustið þá erum við bara komin í verulegan vanda ef við getum ekki haldið áfram þeim framkvæmdum sem áætlað er að verði að veruleika á árinu 2026. Auðvitað geta líka komið upp óvænt atvik sem þarf að sinna, eins og hv. þingmaður nefnir hér. Það getur komið brotsjór og höfn getur skemmst. Þá er eðlilegt að ráðherra hafi einhverjar heimildir til að bregðast við slíku. En ég held að fyrst og fremst sé verið að horfa á að það eru engar framkvæmdir leyfilegar núna vegna þess að samgönguáætlun er ekki til staðar og við því þurfum við að bregðast.