157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:42]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar andsvar. Eins og ég nefndi áðan er þetta vegna þess að samgönguáætlun er ekki klár og því engin heimild til að fara í neinar framkvæmdir. Það er meginmálið. Við getum auðvitað hvert og eitt okkar skoðað samgönguáætlunina og séð um hvaða framkvæmdir er að ræða á árinu 2026. Það kemur fram þar. Ég veit ekkert um kostnaðinn á þeim framkvæmdum. Hann liggur ekkert fyrir. Þetta á allt eftir að fara í útboð væntanlega ef menn ætla að fylgja fjármálareglum. Þá vitum við endanlegan kostnað þegar árið er liðið. En þarna er eingöngu verið að veita heimildina til að halda áfram að vinna þau verk sem áætlað er að verði unnin á árinu 2026. Við vitum auðvitað heildarkostnað samgönguáætlunar til fimm ára en greint niður á hvert einasta verk verður bara að koma í ljós þegar ferill hverrar hafnar hefur klárast. Það er því erfitt að segja á þessum tímapunkti hver áætlaður kostnaður er.

Jú, við getum haft skoðanir á því hvort ráðherra hefði átt að koma með þetta mál en það gerðist ekki. Beiðnin kom til nefndarinnar um að leggja þetta fram og eftir samtal í nefndinni taldi nefndin eðlilegt og rétt, sem betur fer finnst mér, að leggja þetta mál fram sameiginlega. Mér finnst það bara sýna góða samstöðu í nefndinni að hún var tilbúin til að sameinast um að klára þetta mál af því að nefndin telur eðlilegt að hafnarframkvæmdir, hverjar sem þær eru, fái að halda áfram.