157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:45]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég tek undir að það er mikilvægt að það sé ekki stopp á framkvæmdum, sérstaklega ekki af því að við erum kannski ekki að standa okkur hér. Það er líka flott að það sé samstaða. Ég áttaði mig á því að samgönguáætlun er ekki klár og að þetta sé út af því en ég tel mikilvægt að Alþingi fái upplýsingar um hversu háar fjárheimildir er verið að veita. Þetta eru áætlanir og það þarf þá bara að bæta við þær ef það á að fara fram úr þeim. Það er eitthvað sem nefndin skoðar örugglega núna á milli umræðna.