157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram í ræðu minni um kílómetragjaldið. Áður en ég byrja á minni ræðu vil ég þakka þeim fjölmörgu sem hafa tekið þátt í þessari umræðu og mér finnst hún hafa verið málefnaleg. Ég vil sömuleiðis þakka þingmönnum stjórnarmeirihlutans sem hafa tekið þátt í umræðunni og farið í andsvör og ég sé að það eru einhverjir þeirra á mælendaskrá á eftir sem er vel. Þetta er partur af samlokuhrósinu. Svo kemur ræðan og svo skal ég hæla meiri hlutanum eitthvað í restina þá næ ég samlokunni svokölluðu.

Ég var kominn að leigubílunum þegar tími minn þraut í gær, minnir mig. Mig langar að tala hérna um hvað er verið að gera varðandi leigubílana og ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér umsögn Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra sem segir, með leyfi forseta:

„Hvað snertir stétt leigubifreiðastjóra, mun þessi skattabreyting á eldsneyti og orku ekki verða til þess að létta undir rekstri leigubifreiða. Kílómetragjald mun leggjast þrefalt ofan á verðlagið til neytenda. Leigubifreið nýtir seldan akstur að jafnaði 30-45% af heildarakstrinum, eðli starfseminnar vegna. Það skýrist með því að leigubifreið ekur mislanga vegalengd til að sækja farþega og ekur svo aftur tóm til baka í stæðið sitt frá þeim áfangastað sem ferðinni lauk.“

Og áfram segir: „Til viðbótar þykir félagsmönnum B.Í.L.S. liggja í augum uppi, þar sem venjulegir kílómetramælar í almennum bifreiðum eru ekki löggildir mælar, gætu bifreiðaeigendur fundið leiðir til að hafa áhrif á raunstöðu kílómetranna og komist auðveldlega upp með lægri álagningu.“

Virðulegur forseti. Á þetta hefur verið bent og ég ætla svo sem ekki að gera þetta að löngu umtalsefni í þessari ræðu og ætla svo sem engum það að fara að svindla. Það er hins vegar ljóst, virðulegur forseti, að með þeirri tækni sem uppi er í dag, þetta er meira og minna allt orðið stafrænt, þá er miklum mun auðveldara að endurstilla þessa kílómetramæla og breyta þeim heldur en áður. Þá er ég kannski komin að þeim lið sem mig langar að fara í næst. Sá þáttur og sá angi þessa máls sem hefur fengið mikinn tíma í umræðunni eru bílaleigurnar. Nú held ég að það hafi ekki farið fram hjá nokkrum þingmanni að bílaleigurnar eru mjög áhyggjufullar yfir þessu frumvarpi og tína til margt í sínum umsögnum sem sé ekki til þess fallið að styðja við rekstur bílaleiga. Þvert á móti hafa bílaleigurnar verulegar áhyggjur af því að verði þetta frumvarp að lögum muni það skerða rekstrarhæfni þeirra verulega á næsta ári og með miklum tilkostnaði. Hvaða atriði eru þetta, ef ég reyni að draga þetta saman, virðulegur forseti, sem bílaleigurnar hafa áhyggjur af?

Í fyrsta lagi er það gildistíminn sem á að vera núna eftir nokkra daga, 1. janúar 2026, þegar vandamálið er það augljósa að bílaleigur hafa gert samninga við sína birgja og við einkaaðila um að leigja bíla á árinu 2026 á ákveðnum verðum sem bílaleigurnar segja nánast ómögulegt að breyta eða fara að eltast við eftir á. Þetta mun hafa, virðulegur forseti, veruleg áhrif á rekstrarskilyrði bílaleiga. Ef ég man rétt þá hafa þeir metið kostnað sinn af þessu upp á 1,5 milljarða sem er náttúrlega verulega íþyngjandi fyrir eina atvinnugrein og því miður erum við að sjá alltaf betur og betur að vandamálin í ferðaþjónustunni eru að verða stærri og stærri. Ef ég man rétt, virðulegur forseti, held ég að Íslandsbanki hafi verið að gefa út nýjar tölur fyrir ferðaþjónustuna þar sem var verið að tala um allt að 13% færri ferðamenn í nóvember. Ég segi þetta með fyrirvara því ég man þetta ekki alveg, ég var að lesa þetta í morgun. Þetta rímar alveg við það sem ferðaþjónustan hefur verið að segja. Við höfum náttúrlega séð fall Play, við höfum séð stöðu Icelandair, þó að síðasti mánuður hafi verið góður þar þá eru erfiðleikar hjá Icelandair, það er öllum ljóst. Við höfum séð fækkun á gistinóttum og félög í ferðaþjónustunni hafa ítrekað áhyggjur sínar af stöðunni og hvaða staða sé að teiknast upp þar. Sú breyting að fara svona bratt inn í bílaleigurnar er ekki til þess fallin að hjálpa greininni. Það hefur verið bent á flækjustig í innheimtunni. Það þarf að uppfæra tölvukerfi sem tekur tíma og er kostnaðarfrekt og bílaleigurnar sjálfar hafa bent á að þær muni sjá um að rukka þetta inn í staðinn fyrir að þetta sé í raun og veru bara tekið á dælu eins og er í dag sem er einfaldari leið. Í fjórða lagi, eins og ég sagði hérna áðan, er breytingin áætluð 1,5 milljarðar á næsta ári sem mun að öllu óbreyttu, og nú er ég bara að hafa orð forsvarsmanna bílaleiganna sjálfra fyrir því, þurrka upp stóran hluta af þeim hagnaði sem áætlaður var 2026 verði þetta að lögum og mun breyta rekstrarskilyrðum verulega hjá bílaleigum.

Ég sagði frá því í gær, og mér finnst allt í lagi að nefna það aftur vegna þess að þetta er risamál, að t.d. Avis er að fækka þjónustustöðvum á landsbyggðinni. Ég veit það sjálfur að Avis er að loka sinni þjónustustöð á Sauðárkróki. Ég hef heyrt af því að sama sé uppi á teningnum á Ísafirði og eftir samtöl við rekstraraðilann þar og á Sauðárkróki eru svörin sem við fáum að bílaleigurnar séu að bregðast við því frumvarpi sem við erum að ræða í þinginu í dag. Enn og aftur sjáum við hér frumvarp frá hæstv. ríkisstjórn sem er að koma ansi illa við landsbyggðina. Þetta mun hækka leiguverð á bílaleigubílum um 12–17%. Hvað þýðir það, virðulegur forseti? Jú, það þýðir bara að þetta mun hafa áhrif á dreifingu ferðamanna um landið. Þetta mun hafa áhrif á fjölda leigðra daga hjá bílaleigum. Hvað þýðir það? Hvað gerist í því? Jú, þá verða ferðirnar væntanlega styttri og í meira nærumhverfi við höfuðborgarsvæðið, þ.e. ferðaþjónusta á landsbyggðinni mun finna fyrir þessari breytingu. Eðli málsins samkvæmt er hægt að færa líkur fyrir því og rök að ferðaþjónustuaðilar sem gera út sína starfsemi á landsbyggðinni muni finna fyrir fækkun ferðamanna ef það verður raunin að þeir ferðamenn sem hingað koma og leigja sér bílaleigubíla muni ákveða eftir hækkunina að fara í styttri ferðir.

Ég sé, virðulegur forseti, að tími minn er að renna frá mér. Ég á enn þá svolítið eftir þannig að ætli ég biðji ekki bara (Forseti hringir.) virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.