157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:32]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisandsvar seinna sinni. Þetta er alveg rétt. Ef maður skoðar fjárfestingarframlögin þá er munurinn þessir 7 milljarðar. Þetta er bara þarna. Ef þú tekur rekstrarframlög inn og aukninguna þar og rekstrartilfærslur og fjármagnstilfærslur þá hækkar þetta um 10 milljarða og með öllu þessu er þetta hækkun um einhverja 3. Fjárfestingarframlögin til framkvæmda í vegagerð eru náttúrlega það sem þetta snýst um. Ég get ekki alveg svarað því af hverju þetta kemst ekki til skila nema líklega — og nú er ég bara að geta mér til, virðulegur forseti, og hef ekkert fyrir mér í því — en væntanlega eru þær tölur sem stjórnarliðar eru að vinna með aðrar og hafa væntanlega eitthvað að gera með þetta innviðsafélag sem á að stofna til þess að halda utan um framkvæmdirnar og væntanlega á að koma eitthvert meira fjármagn þar í gegn sem er þessi aukning.

Vandamálið við það, virðulegur forseti, er að við sjáum ekkert um þetta innviðafélag hér inni. Það er ekkert um þetta í fjárlögunum. Það er engin fjárheimild til þessa félags og ég held meira að segja, ég var að renna í gegnum þetta í gær, að það sé ekki einu sinni heimild í 6. gr. til að stofna þetta félag. Það hefði náttúrlega farið miklu betur á því að menn hefðu sýnt betur á spilin í fjárlagafrumvarpinu (Forseti hringir.) og hvað menn ætla að setja mikla fjármuni inn í þetta innviðafélag því það hefði mögulega getað skýrt þá aukningu sem stjórnarmeirihlutinn er að tala um og við sjáum ekki hér.