kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni kærlega fyrir góða spurningu. Það er nefnilega þannig, eins og ég var að koma inn á áðan, að líklega verður búið núna um áramótin að leigja 500 þúsund daga, 500 þúsund dagar sem verður búið að leigja út. Það er mat, gæti verið 400, gæti verið 600, en það er matið að þetta verði um 500 þúsund dagar sem verði búið að leigja út. Þá veltir maður fyrir sér hvort núna eigi að fara að hafa samband og segja: Ja, við erum því miður með vinstri stjórn, kæri viðskiptavinur, og vinstri stjórnin er búin að hækka á okkur skattana og við þurfum að hækka bílaleigubílinn sem þú ert búinn að leigja hjá okkur á ákveðnu verði. Nei, þessi kostnaður er bara að falla á bílaleigurnar. Samtök ferðaþjónustunnar hafa, til að reyna að lágmarka skaðann, komið með tvær tillögur um það hvernig megi þó a.m.k. reyna að lágmarka skaðann.
Fyrri tillagan er sú að gildistakan verði 1. janúar 2027. Já, ég tek undir, ég sé að hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson hristir hausinn hér, ég er alveg sammála því. Hér eru Samtök ferðaþjónustunnar að reyna þó að semja við vinstri menn um einhverjar skaðaminnkandi aðgerðir, skaðaminnkandi aðgerðir eða þá að gjaldið sé tekið í þrepum. En auðvitað eru þetta bara samningaumleitanir fyrirtækjanna til að reyna að skaðaminnka áhrifin af þessum gjöldum. Hefur verið hlustað á það? Nei, það hefur ekki verið hlustað á það. Það á að keyra áfram á fullum hreyfli og láta bílaleigurnar taka þetta á kassann, mörg hundruð milljónir sem á að taka út úr þessum fyrirtækjum.