157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:02]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans seinni spurningu. Þessi stjórnsýsla er náttúrlega fyrir neðan allar hellur. Í umsögn Bílaleigu Akureyrar er tekið dæmi um samskipti við þýskan ferðaheildsala. Ég ætla að fá að vitna í þessa umsögn, með leyfi forseta: „Þýskur ferðaheildsali orðaði þetta mjög „röggsamlega" í mín eyru: „Ef stjórnvöld á Íslandi kjósa að verðleggja landið ofar öllum öðrum þá er það þeirra val, en reynið ekki að rukka okkur fyrr en þið hafið gefið okkur a.m.k. 12 mánuði til að kynna fyrir okkar viðskiptavinum. Við samþykkjum enga eftir á reikninga.““

Þetta er einmitt staðan. Þetta er einmitt staðan og því miður hafa íslensk stjórnvöld í gegnum tíðina ekki sýnt skilning á því hvernig ferðaþjónustan virkar í rauninni. Ef það á að fara að auka álögur á ferðaþjónustu þyrfti eiginlega að gera það með 36 mánaða fyrirvara ef vel ætti að vera, 36 mánaða fyrirvara. Við höfum verið að tala um innviðagjaldið sem voru mistök að setja á og ég held að sú lækkun sem kemur núna sé alls ekki nóg og að þetta innviðagjald ætti bara að fara af eða vera a.m.k. til samræmis við gistináttagjaldið sem er á hótelum. Þá erum við að tala um að bjarga vertíðinni 2028. Það er búið að selja 2026 og það er búið að selja 2027. Áhrif þess að lækka og koma til móts við ferðaþjónustuna núna er fyrir 2028 þegar þessu kjörtímabili er að ljúka. Þannig að þessi stjórnsýsla er fyrir neðan allar hellur og sýnir engan skilning á aðstæðum (Forseti hringir.) atvinnugreinar eins og ferðaþjónustunnar.