157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:37]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgott svar. Mig langar að halda áfram að toga hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson til þess að ræða þá þætti frumvarpsins sem hafa fengið minni athygli. Þetta er auðvitað, svo það sé bara sagt, komið gott í skattlagningu á ökutækjaeigendur og þá sem nota ökutæki því allir eru jafn háðir vegunum. Jafnvel þeir sem aldrei fara út úr húsi þurfa að fá heimsendan mat. Einhvers staðar er vegurinn notaður í lífi hvers einasta manns. Mig langar að nefna hérna hluti eins og afþreyingu. Nú á að fara að taka kílómetragjald af fornbílum sem eru hluti af menningarsögu þjóðarinnar, samgöngusögu þjóðarinnar. Við höfum hvatt og veitt umbun í gegnum tíðina til handa þeim sem hafa viljað halda þeim til haga hér og gera upp eldri ökutæki svo okkar kynslóð og komandi kynslóðir geti fylgst með og skoðað hvernig þessi samgöngumáti hefur verið samofinn íslensku þjóðinni til svo margra áratuga.

Í þessu samhengi langar mig einnig að nefna akstursíþróttir. Nú liggur fyrir að þrátt fyrir reyndar örlitla lækkun frá því sem upphaflega var stefnt að þá er ljóst að þessi skattur mun hafa áhrif á þá sem eru að stunda hér akstursíþróttir, til að mynda tiltölulega unga krakka sem eru að nota torfæruhjól á afmörkuðum svæðum. Þetta mun líka hafa áhrif á öll bifhjól sem flokkast líka undir áhugamál í mjög mörgum tilfellum. Þar á núna að setja 4,15 kr. á notkun hjólanna sem ég held að við séum öll sammála um að slíta vegunum svo lítið að það er vart mælanlegt.