157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:40]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni andsvarið. Nei, það á enginn að sleppa undan þessu. Það er ljóst að það á að taka á öllu. Ég sit svo sem ekki í efnahags- og viðskiptanefnd en mig minnir að það hafi verið miðað við 25 ár, þá hafa bílar verið skráðir fornbílar. Það sem er verið að gera hér — er þetta 1. janúar 1965? Það eru þá bílar sem eru 61 árs og eldri, þannig að það eru varla margir sem sleppa undan þessum nýja skatti. Þetta hefur verið stórt og mikið áhugamál á Íslandi, þessi fornbílar og að gera upp gamla bíla. Það hefur verið mikill áhugi og þetta er svolítið íslenskt. Ég efast um að það sé hlutfallslega jafn mikill áhugi á þessu áhugamáli víða annars staðar eins og á Íslandi. Þetta eru gríðarlega stórir hópar sem hafa áhuga á þessu og þetta eru bílar sem eru almennt ekki keyrðir mikið. Þeir fara á númer og eru oft sparibílar yfir sumarið og í góða veðrinu fara menn í bíltúr og svona. En það er svolítið þessi nálgun að það þurfi raunverulega að skattpína allt í drep. Það virðist dálítið vera aðferðafræðin. Varðandi krónurnar sem á að taka af kílómetrunum á mótorhjólum, auðvitað er það þannig að mótorhjól eru ekkert að — hugmyndafræðin um að slíta vegunum, ef við förum í það. Þetta er bara áhugamál hjá fólki. Ég held að það séu mjög fáir á Íslandi sem nýta mótorhjól sem aðalferðamáta eða slíkt, ef það er nálgunin að skattheimta aðalferðamáta. Þarna virðist bara vera einhver stemning í einhverju ráðuneytinu. Ég trúi varla að þetta sé pólitík í þessum í stjórnarflokkunum að vaða í þessa skattheimtu. Ég held að menn eigi bara að taka þetta út og gera eitthvað þarfara, taka þarfari hluti í gegn heldur en þetta.