kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur kærlega fyrir ræðuna; mér finnst hún alltaf vönduð og málefnaleg í sínum málflutningi. Mig langar til að spyrja — þó svo að ég hafi almennt ekki gert það að vana mínum að fara ofan í söguna og skammast út í þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem voru almennir þingmenn fyrir það að vera á móti máli sem var búið til í þeirra ríkisstjórn. Auðvitað eru það á endanum bara við sem erum í meiri hluta í dag sem berum ábyrgð á því hvernig tekjuhlið þessara fjárlaga og fjárlaga næstu ára er háttað. Engu að síður var það þannig að hv. þingmaður var ráðherra í ríkisstjórn á meðan þetta mál var í bígerð og var í þróun og það var þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sem mælti fyrir því og það var unnið á þeim vettvangi. Af því að ræða hv. þingmanns er þess efnis að maður skilur að það eru grundvallaratriði í frumvarpinu sem hún er andvíg spyr ég: Hvort er það þannig að hv. þingmaður hafi alla tíð verið á móti þessari hugmynd um kílómetragjald í þessu formi sem lagt er til en orðið undir í einhvers konar hugmyndafræðilegri umræðu innan ríkisstjórnar eða þannig að hún hafi upprunalega verið hrifin af hugmyndinni en síðan hafi eitthvað gerst í kjölfarið sem hafi fengið hana til að skipta um skoðun?