157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

ákvarðanir ráðherra ríkisstjórnarinnar.

[10:44]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Það er gott að hæstv. utanríkisráðherra ætli að koma að hinum atriðunum, þ.e. öllum spurningunum, af því að hún svaraði auðvitað engu, sem er ekki nýtt. Þetta var fínasta ræða til heimabrúks, jafnvel í kosningabaráttu, en hún einkenndist samt svolítið af því sem við höfum verið að sjá. Ríkisstjórnin segir að hún ætli að gera alls konar hluti. Hún gleymir bara að hafa samtal við þingið. Og má þá nefna — ég nefndi hérna nokkra ráðherra Flokks fólksins. En það má líka nefna ráðherra í flokki hæstv. utanríkisráðherra; dómsmálaráðherra sem hefur líka farið um og látið fólk fara og ekki skipað í embætti vegna þess að það á að fara að breyta öllu og það er bara látið bíða. Það er þingið sem setur rammann í kringum framkvæmdarvaldið. Ráðherrarnir geta ekki gengið um og lýst því yfir hvað þeir ætla að gera og jafnvel framkvæmt, öðruvísi en að koma fyrst til þingsins. Ég veit að stundum tekur það tíma en það er rétta leiðin. Sumt af hinu getur hreinlega verið lögbrot en alla vega klárlega fúsk og ekki góð stjórnsýsla.