málefni hælisleitenda.
Virðulegur forseti. Málefni hælisleitenda eru okkur hugleikin og hafa verið um langa hríð. Við sjáum að eftir aðgerðir þáverandi dómsmálaráðherra, Guðrúnar Hafsteinsdóttur, vorið 2024, voru skref stigin, mjög mikilvæg skref, í þá átt að fækka umsóknum og ná einhverju jafnvægi í málaflokknum. Þeir sem starfa á þessum vettvangi hafa undanfarna mánuði og misseri fundið áþreifanlega fyrir því. En í tölum sem birtast núna hjá Útlendingastofnun, á vef Útlendingastofnunar, tölfræði verndarsviðs stofnunarinnar, þá kemur í ljós að mikið stökk virðist eiga sér stað á milli september og október í ár miðað við sömu mánuði í fyrra, mjög mikið stökk. Ég veit til þess að þeir sem sinna málaflokknum, sinna fólkinu sem kemur inn til sveitarfélaganna, finna fyrir mjög auknu álagi núna undanfarnar vikur og hafa miklar áhyggjur af þróuninni. Þarna kemur fram að það eru Úkraínumenn sem eru langflestir, Palestína og Venesúela koma þar á eftir.
En mig langaði til að fá það fram frá dómsmálaráðherra hverjar t.d. tölurnar eru í nóvember. Nú erum við komin talsvert fram í desember, er þróunin áfram í þessa átt? Ég vil taka það fram að í september og október í fyrra voru um 130 og 140 hælisleitendur. Þeir eru 236 og 225 í þessum mánuðum þannig að það er umtalsverð aukning. Sýna tölur í nóvember að þróunin sé enn í þessa átt? Ef svo er þá þurfum við að læra af reynslunni og við þurfum að vera viðbúin því ef eitthvað er að breytast aftur í þessum efnum. Er til viðbragðsáætlun til að bregðast við?