157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

málefni hælisleitenda.

[10:53]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég byrja kannski á því sem hv. þingmaður endaði á, með hlutfall eldri borgara. Að einhverju marki er þetta afleiðing þess að reglur um dvalarleyfi voru rýmkaðar hér á landi. Reglur um fjölskyldusameiningar voru rýmkaðar hér á landi, t.d. hvað varðar námsmannaleyfi. Háskólastúdent sem kemur til Íslands getur flutt með sér aldraða foreldra sína. Þetta var ákvörðun sem var tekin hér árið 2023 og þetta undirstrikar það sem ég er að reyna að segja, að við erum að læra af reynslunni. Ég er í markvissu samtali við Norðurlöndin öll. Ég er með fimm frumvörp á dagskrá þennan þingveturinn. Við erum í markvissum aðgerðum við að afnema séríslenskar reglur. Allar aðgerðir, og þetta er kjarnaatriði, verða að byggjast á stefnu, verða að byggjast á heildaryfirsýn. Stóra markmiðið hér, þegar við horfum á tölur, er að þær spegli eitthvert regluverk. Við erum í aðgerðum um dvalarleyfi. Ég er með fimm frumvörp hér á dagskrá þessa þings. Við erum sannarlega að reyna að læra af reynslu Norðurlandanna og við njótum góðs af því að geta litið til þess hvernig hlutirnir voru þar fyrir áratug. Heildartala umsókna um alþjóðlega vernd er lægri í ár en hún var í fyrra.