157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

aðgerðir og stefna stjórnvalda í utanríkismálum.

[10:55]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Þing Evrópusambandsins samþykkti í lok nóvember skýrslu utanríkismálanefndar þingsins um stefnu sambandsins gagnvart norðurslóðum. Evrópusambandið afhjúpar í þessari skýrslu að það ásælist auðlindir Íslands og þar er rætt um mikilvægi náttúru- og orkuauðlinda Íslands, Noregs og Grænlands fyrir Evrópusambandið. Sú afhjúpun kemur mér raunar ekkert á óvart en það vekur óneitanlega athygli að stofnanir sambandsins séu hvattar til þess að beita sér fyrir því að löndin þrjú gangi í sambandið. Þá segir einnig að Evrópusambandið hyggist taka með virkum hætti þátt í því með ríkisstjórn Íslands — ég endurtek með ríkisstjórn Íslands — að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsóknarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína. Þetta kemur á óvart þar sem ég hefði talið hingað til að Evrópusambandið væri með í þeim diplómatísku prinsippum sem við aðhyllumst; að hafa ekki afskipti af innanríkismálum ríkja líkt og þarna er boðað.

Forseti. Þetta vakti athygli mína og undrun að þar segi að taka eigi með virkum hætti þátt í því með ríkisstjórn Íslands. Enginn fyrirvari settur. Pólitísk afskipti í aðdraganda þjóðaratkvæðis þar sem einungis verði lögð áhersla á kosti þess, að mati sambandsins, að Ísland verði hluti þess. Hér hljóta þess vegna að hafa átt sér stað samtöl við hæstv. utanríkisráðherra um slíka yfirlýsingu. Ég spyr: Hvaða samskipti og upplýsingaskipti liggja hér að baki milli ESB og utanríkisráðherra? Er þessi texti í þessari skýrslu ESB hvað Ísland varðar með samþykki utanríkisráðherra? Ef ekki, hyggst þá utanríkisráðherra ekki að gera formlega athugasemd við slíka áætlaða íhlutun af hálfu ESB? Eða hefur slíkri athugasemd þegar verið komið á framfæri?