aðgerðir og stefna stjórnvalda í utanríkismálum.
Virðulegi forseti. Bara þannig að það sé algerlega á hreinu, og þetta ætti hv. þingmaður að vita sem fyrrum starfsmaður utanríkisráðuneytisins: Stofnanir ESB og allar aðrar erlendar stofnanir, þetta er ekki bara ESB, þetta er bara líka alveg á hreinu — utanríkisstefna Íslands er mótuð af Íslendingum, ákveðin hér, og þessar stofnanir, hvort sem þær eru í Evrópusambandinu eða annars staðar, sem ég hef átt mjög mörg samtöl við, bæði vestan hafs og austan, vita auðvitað til að mynda að þjóðaratkvæðagreiðslan er innlent ferli. Þær hafa ekki aðkomu að því, þannig að það sé algerlega á hreinu, og þau mörk verða að sjálfsögðu virt.
Hitt er síðan að ég rek augun í að það er einhver hystería þarna úti yfir því að utanríkisráðherra sé að hitta alls konar fólk. Auðvitað hittir utanríkisráðherra fólk, ekki síst þingmenn og ráðherra sem óska eftir því og á samtal við þá aðila, meira að segja líka þá þingmenn sem hafa verið til að mynda í utanríkisráðuneytum tiltekinna landa eins og til að mynda Eystrasaltsríkjanna sem eru miklar vinaþjóðir okkar Íslendinga. Það er ekkert nýtt að utanríkisráðherra hitti fólk sem kemur hingað heim, hvort sem það er á vegum Evrópuráðsins eða síðan bara þjóðþinga, þannig að ég ætla ekkert að fara að hætta því þó að það gæti einhverrar taugaveiklunar innan raða Miðflokksins hvað þetta varðar.
Varðandi þessi brigsl, og þetta er ekkert annað en bara ásakanir um meint áhrif okkar á þessa afstöðu Evrópuþingsins, þá eru slíkar ásakanir auðvitað úr lausu lofti gripnar, algerlega. Það er ekki þannig að ég hafi nein áhrif á niðurstöðu þessarar skýrslu sem er verið að ræða. Þá spyr maður sig, virðulegur forseti: Hver er glæpurinn? Er það að við í ríkisstjórninni treystum íslensku þjóðinni fyrir næstu skrefum? (Forseti hringir.) Mér finnst áhugavert í öllum þessum fyrirspurnum og þessari hysteríu af hálfu Miðflokksins að það er alltaf þessi ótti við þjóðina. Það er eins og það eigi að gera allt til að koma í veg fyrir að þjóðaratkvæðagreiðslan eigi sér stað. (Forseti hringir.) Það er alveg ljóst að þessi ríkisstjórn treystir þjóðinni fyrir þessu mikilvæga skrefi. Hún á ekki að hlusta og ætlar ekki að hlusta á einhverja hysteríu af hálfu stjórnarandstöðunnar.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (): Forseti minnir á ræðutímann.)