157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

aðgerðir og stefna stjórnvalda í utanríkismálum.

[10:59]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Talandi um hysteríu og taugaveiklun þá er alger óþarfi af hæstv. utanríkisráðherra að æsa sig svona mikið. En ég þakka henni fyrir svarið. Hæstv. utanríkisráðherra hefur staðfest hér að hún ætli sem sagt ekki að gera athugasemdir við innihald skýrslu Evrópusambandsins varðandi pólitísk afskipti af innanríkismálum hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá vitum við það.

Mig langar að spyrja út í annað í seinna andsvari. Ég sé að utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að útdeila nú þegar 25 millj. kr. fjárauka til að efla umræðu um ESB í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þrenn samtök fá framlag: Evrópuhreyfing Viðreisnar og Heimssýn, 10 milljónir hvor, 5 milljónir fær Vísindavefur Háskóla Íslands. Mig langar að spyrja um ferlið. Hvernig voru þessi samtök valin? Var auglýst? Hvað sóttu margir um? Er hægt að sjá lista yfir umsóknir? Og hvað með önnur eða óstofnuð samtök, hvers eiga þau að gjalda? Hefði ekki verið nær að bíða með þetta (Forseti hringir.) eða hafa jafnvel til hliðsjónar ferlið sem var viðhaft 2011?