verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég vil fagna því sérstaklega að þetta mál sé komið á þennan stað. Ég þakka nefndinni fyrir góða vinnu og ég þakka líka gott samstarf milli utanríkisráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Þetta er mikilvægt skref sem við erum að stíga hér í þágu líffræðilegrar fjölbreytni og kemur m.a. í framhaldi af þeirri ákvörðun að Ísland taki þátt í milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og vistkerfisþjónustu, IPBES. Þetta er ákvörðun sem var tekin núna í mars og við erum að vinna um leið að stefnu og aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Þetta er mikilvægt skref, mikilvægt að Ísland taki þátt í þessu alþjóðasamstarfi og ég vil þakka Alþingi fyrir þessa góðu vinnu.