Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.
Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir að óska eftir þessari umræðu við hæstv. dómsmálaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur. Jafnframt þakka ég öðrum hv. þingmönnum fyrir umræðuna hér í dag og höfundum skýrslunnar fyrir vinnu sína.
Frú forseti. Það er afar mikilvægt að efni skýrslunnar sem við ræðum hér í dag verði rýnt vel og eftir atvikum brugðist við upplýsingum sem fram kom í henni, svo og tillögum starfshópsins um hvernig standa megi betur að móttöku og inngildingu erlendra ríkisborgara hér á landi. Á árunum 2017–2025 fjölgaði fólki á Íslandi um 57.000 manns sem er tæplega fjórum sinnum meira en á öðrum Norðurlöndum og 13 sinnum meira en í Evrópu að meðaltali. Fjölgun erlendra ríkisborgara skýrir tæplega 70% fólksfjölgunarinnar á tímabilinu í landinu. Sú fjölgun erlendra ríkisborgara síðustu ár er svo mikil að hún setur verulegan þrýsting á innviði hér á landi. Nægir þar að nefna móttökukerfið sjálft, heilbrigðiskerfið, skólakerfið og hið félagslega kerfi. Þá er athyglisvert að kjör erlendra ríkisborgara, einkum svokallaðra þriðja ríkis borgara, eru verri að meðaltali en Íslendinga sem hér eru bornir og barnfæddir. Sé það svo að kerfin okkar ráði illa við svo mikla fjölgun þjónustuþega að allir fái verri þjónustu þá þarf að bregðast við. Ég vil benda á að hvort tveggja höfum við verið hér með til umfjöllunar á þinginu mál sem er ætlað að sníða af úr tilteknu regluverki svokallaðar séríslenskar reglur sem varða móttöku umsókna um alþjóðlega vernd, auk þess sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur boðað frumvarp sem ætlað er að sníða af reglur er varða veitingu dvalarleyfa sem eru frábrugðnar reglum hinna Norðurlandanna í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Það kemur mér nokkuð á óvart að hv. þm. Snorri Másson skuli gera fjölgun EES-borgara að sérstöku umfjöllunarefni og spyrja hæstv. dómsmála hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeirri fjölgun. Það er ekki laust við að við þessa spurningu verði hugrenningatengsl við afstöðu Miðflokksins til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Hæstv. dómsmálaráðherra svaraði þessari spurningu raunar vel hér fyrr í umræðunni. En frjálst flæði fólks er, eins og allir vita, eitt grundvallaratriði þessa samnings og verður ekki skilið frá öðrum þáttum fjórfrelsisins sem er ætlað að gilda á EES-svæðinu og gildir einnig um íslenska ríkisborgara. Samningurinn er okkar mikilvægasti viðskiptasamningur og ég leyfi mér að vara við því (Forseti hringir.) að reynt sé að fella pólitískar keilur með því að gera lítið úr mikilvægi hans og/eða einstakra þátta hans.
Að lokum er rétt að benda á að Íslendingar búsettir erlendis eru um 50.000 talsins.