Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.
Frú forseti. Þetta er áhugaverð umræða sem hér fer fram og það er gott fyrir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að hafa það í huga að þeir breyta ekki sögunni, þeir gera það ekki. (Gripið fram í: Engin ástæða til. )Það er staðreynd að það voru hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, m.a. Jón Gunnarsson, sem stóðu fyrir því að rýmka hér dvalarleyfi fyrir sérfræðinga sem eru síðan við sín störf, m.a. á naglastofum og núðluhúsum. Síðan verður líka að horfa til þess að það voru sóttir hér Palestínumenn í breiðþotum á vakt Sjálfstæðisflokksins og menn geta ekki breytt því. (Gripið fram í.) Frú forseti, það er alveg með ólíkindum að þegar rifjuð er upp saga sem hægt er að fara yfir þá kemur fram í framíköllum að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins virðast vera að fara á taugum yfir því að þetta sé rifjað upp. Núna sjáum við muninn, það er ábyrg ríkisstjórn sem leggur fram fjölmörg mál í þessum málaflokki og er að ná tökum á hlutunum. Mér finnst það skipta öllu máli að við séum að færa þessi mál til betri vegar og það er gott að vita til þess að það sé almennur vilji til þess að fylgja þessum málum eftir og gera það vel. Það er það sem í rauninni skiptir öllu máli í þessari umræðu, að við herðum reglurnar og færum þær í átt við það sem er á hinum Norðurlöndunum.