kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það er við hæfi að koma núna og halda þessari umræðu áfram í kjölfar þess að við vorum á fundi hjá samtökum aðila í ferðaþjónustu þar sem þau ágætu samtök kynntu niðurstöðu skýrslu Reykjavík Economics um skattspor ferðaþjónustunnar. Í kjölfarið voru umræður þar sem hæstv. fjármálaráðherra tók m.a. þátt. Skilaboð þessara aðila, sem eru að skapa verðmæti í þessu landi og eru að borga um 200 milljarða til ríkis og sveitarfélaga, voru einföld: Leyfið okkur að búa til verðmæti, gefið okkur svigrúm til að búa til verðmæti, ekki setja fótinn fyrir okkur. Þau báðu svo sem um að það yrði ekki nokkurn tímann gert, en alls ekki núna við þessar aðstæður. Þau sýndu fram á það með rökum að þetta frumvarp, ásamt öðrum frumvörpum ríkisstjórnarinnar, myndi gera ferðaþjónustunni gríðarlega erfitt fyrir og þá sérstaklega bílaleigunum.
Einhver kynni að segja, ég vona ekki en það gæti verið: Skipta bílaleigurnar einhverju máli? Jú, þær skipta gríðarlega miklu máli og þær eru lykilaðili í því, virðulegi forseti, að koma ferðamönnum á milli staða á landinu. Núna erum við með frumvarp sem mun ekki bara gera þeim gríðarlega erfitt fyrir heldur er í rauninni afturvirkur skattur vegna þess að ferðaþjónustan, eins og margar aðrar atvinnugreinar en sérstaklega ferðaþjónustan, selur sína vöru langt fram í tímann. Núna er t.d. búið að selja vöru sem gerir ekki ráð fyrir þessu kílómetragjaldi, og þá er ég að tala um bílana hjá einstaka fyrirtækjum, um sem nemur hundruðum milljóna. Það sem þetta frumvarp gerir, virðulegi forseti, er að það mun skaða mjög samkeppnishæfni þessara fyrirtækja og gera þeim erfitt fyrir. Reyndar eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar búnar að gera þessum fyrirtækjum gríðarlega erfitt fyrir og þá er ég t.d. að vísa í fyrirhugaða vörugjaldshækkun sem hefur gert það að verkum að nú eru fyrirtæki að hamstra bíla til að borga lægri gjöld en eftir áramót. Það mun hafa það óhagræði í för með sér, sem enginn hagnast á, að núna munu sitja hér mjög mikið af bílum sem eru ekki notaðir fyrr en í sumar. Það er ekki gott fyrir neinn. Þetta er að vinna gegn orkuskiptunum vegna þess að þegar menn hamstra bensín- og dísilbíla mun hægja á því að menn fari í rafvæðinguna. Það sama mun gerast og áður, vegna þess að þær bílaleigur sem voru hér áður með kílómetragjöld hafa reynslu af því að það leiddi af sér að viðskiptavinirnir, sérstaklega frá ákveðnum löndum, tóku mið af því þegar þeir voru að nota bílaleigubílana. Með öðrum orðum var eitthvert þak, 100 km, og menn keyrðu þá bara 100 km á dag og fóru ekkert lengra. Það nákvæmlega sama mun gerast þegar þú setur þetta kílómetragjald á; ákveðinn hluti viðskiptavinanna mun líta til þess að þeir vilja ekki borga meira en einhverja ákveðna upphæð sem þýðir það að þeir keyra styttra.
Einhver kynni að segja: Skiptir það einhverju máli? Já, virðulegur forseti, það skiptir máli fyrir allt landið en þó sérstaklega skiptir það máli fyrir þá landshluta sem eru lengra frá Keflavíkurflugvelli heldur en styttra. Það eru þau svæði sem hefur verið vilji, held ég, allra stjórnmálaflokka og stjórnvalda, alveg sama hver það hefur verið — ég held að við viljum öll að allir landsmenn fái að njóta þess sem ferðaþjónustan gefur af sér. Reyndar er það svo að ferðaþjónustan hefur gjörbreytt lífsafkomu fjölmargra Íslendinga, og svo sem allra með óbeinum hætti. Það eru mörg svæði á landinu sem lítið var að gerast í þrátt fyrir að stjórnvöld væru að reyna ýmislegt til að efla þau en þau hafa stóreflst og dafnað með tilkomu ferðamannanna. Ég nefni t.d. Vík í Mýrdal sem er svona augljós staður. Þegar ég var fyrst að keyra austur í sveitir og heimsækja tengdaforeldra mína í Skaftártungu fyrir 20 árum síðan þá var eiginlega enginn í Vík í Mýrdal yfir vetrarmánuðina nema það var ein bensínstöð opin. Allir sem komu í Vík í Mýrdal sjá gjörbreytt ástand. Ég held að við séum sammála um það að við myndum vilja sjá slíkt gerast á fleiri stöðum.
Virðulegi forseti. Núna ætlar ríkisstjórnin að keyra fram þessa skattahækkun sem mun m.a. hafa þessi neikvæðu áhrif en í ofanálag erum við að flækja reglugerðaumhverfið gríðarlega. Það kostar alltaf peninga þegar þú flækir reglugerðaumhverfið. Í þessu tilfelli eru þetta hvorki meira né minna en 1,5 milljarðar á ári. Kostnaður við að flækja reglugerðaumhverfið verður allt að því 1,5 milljarðar á ári sem munu leggjast á þá aðila sem þurfa að innheimta þessi gjöld fyrir ríkissjóð. Bílaleigurnar eru náttúrlega mjög stór þáttur í því.
Virðulegur forseti. Voru kosningaloforð stjórnarflokkanna öfugmælavísur? Var það þannig þegar þau sögðust ekki ætla að hækka skatta á venjulegt fólk, á almenning? Var þetta eitthvert grín? Þetta frumvarp mun hækka skatta á venjulegt fólk og almenning og svo sannarlega fyrirtækin líka, en þetta mun óumdeilt hækka skatta á venjulegt fólk. Í annan stað sögðu þau: Við verðum að einfalda reglugerðakerfið. Þau bentu réttilega á það að þar er verk að vinna. Hvað eru þau að gera núna? Eigum við að bera saman ástandið eins og það er og hvernig það verður? Þetta er væntanlega ein stærsta aðgerð í þá veruna að flækja reglugerðaumhverfi sem við höfum séð í sögu landsins. Það er ekkert lítið mál að setja kostnað sem nemur 1,5 milljörðum á atvinnulífið. Það er ekkert lítið mál, virðulegur forseti.
Vanalega eru reglugerðarbreytingarnar sem flækja kerfið litlar í hvert skipti en svo þegar saman kemur þá verður þetta orðið gríðarlega flókið. Það er svona alla jafna. Alla jafna þegar á þetta hefur verið bent segja menn: Já, ókei, þetta er smá flæking en þetta er svo lítið. Í þessu tilfelli er þetta bara risastórt. Þau sögðu líka að þau ætluðu að auka og efla samkeppnishæfni þjóðarinnar og þá er auðvitað verið að vísa sérstaklega til atvinnuveganna. En þetta er að gera hið öfuga. Það liggur alveg fyrir að íslensk ferðaþjónusta mun ekki vera jafn samkeppnishæf eftir að þetta frumvarp verður samþykkt. Það bara liggur alveg fyrir. Við höfum heyrt fjölmargar ræður og séð fjölmargar greinar og yfirlýsingar frá forystumönnum í stjórnarflokkunum þar sem menn hafa sérstaklega tekið innviðagjaldið til og þeir höfðu rétt fyrir sér í því. Það var ekki nægilega úthugsað þegar við lögðum það á og það hafði slæm áhrif. Það fækkaði ferðamönnum á stöðum þar sem við viljum alls ekki fækka þeim. Þetta er nákvæmlega það sama nema þetta verður miklu stærra mál. Þetta er miklu stærra innviðagjaldsmál heldur en innviðagjaldið sjálft.
Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að það olli mér gríðarlegum vonbrigðum að hlusta á hæstv. fjármálaráðherra á fundinum áðan. Mér fannst hann taka þessu með léttúð og kom ekki með og reyndi ekki einu sinni að færa nein rök fyrir því að þær áhyggjur sem voru bornar á borð og komu fram eftir vinnu við þessa skýrslu og annað slíkt, að þarna væri einhver misskilningur á ferðinni eða að menn þyrftu ekki áhyggjur út af einhverjum forsendum. Þvert á móti. (Forseti hringir.) Þá má svo skilja að hæstv. ríkisstjórn ætli að halda áfram með þetta mál, alveg sama hverjar staðreyndir máls eru þegar við lítum á það og þær afleiðingar sem það mun hafa í för með sér.