157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:31]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir góða yfirferð. Hér var tæpt á mörgu. Mig langar aðeins til að fara með hv. þingmann að þeim tíma þegar í raun var verið að velta því upp, og ég vil nú meina að það hafi verið á síðasta kjörtímabili, hvernig væri skynsamlegt að haga gjaldtöku af umferð með sem, ja, ég vil leyfa mér að segja kannski réttlátustum hætti. Þá var alla vega uppi hugmyndafræði um að þeir borgi sem slíta vegunum. Á þeim tíma var sú áskorun uppi að það fóru verulega minnkandi tekjur af sölu eldsneytis á grundvelli þess að hér fjölgaði hreinorkubílum og því ljóst að menn vildu viðhafa eitt kerfi og það væri þá kannski skynsamlegt að horfa á þessa skráningu ekinna kílómetra. Síðan hefur komið í ljós, og þess vegna var málið einmitt stöðvað á síðasta kjörtímabili, að þetta er ekki svo einfalt í framkvæmd.

Því langar mig til að spyrja hv. þingmann: Hvernig getum við hagað gjaldtökunni í ljósi þessarar erfiðu innleiðingar? Er skynsamlegt að fara í þetta í einhvers konar áföngum eða er skynsamlegt að undanskilja t.d. stóra flutningabíla með einhverjum hætti og bílaleigubíla þannig að það taki ekki gildi á komandi ári?