kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir spurninguna. Hvað er skynsamlegt að gera? Skynsamlegast af öllu er að hætta við þetta. Það er einboðið og það er augljóst. Ef menn ætla að sækja 3,3 milljarða, að frádregnum kostnaði sem er 1,5 milljarðar, þá þarf ríkisstjórnin einungis að sækja 1,8 milljarða. Hvar getur ríkissjóður sótt það? Við í Miðflokknum höfum talað fyrir því að spara frekar í ríkisútgjöldum heldur en að leggja á skatta. Það þyrfti auðvitað að spara, kannski í loftslagsmálum t.d. þar sem verið er að eyða 28 milljörðum á ári. Hvernig væri að spara þessa 1,8 milljarða þar? Það eru innan við 10% af útgjöldum til loftslagsmála. Þetta er auðvitað aðaltillaga okkar: Hætta við þetta, spara í staðinn, leggja ekki á skattinn.
Já, að undanskilja; það myndi nú kannski flækja kerfið ef þú ætlar að undanskilja ákveðna flokka. Ekki myndi það bæta innheimtuna. Það myndi flækja kerfið ef sumir væru undanþegnir og aðrir ekki. Ég held líka, eins og sumir hafa sagt, að ef þú tekur bara þetta gjald af bensíni og dísil og heldur því áfram, ef þessum bílum á að fækka á næstu árum og áratugum, hugsanlega gera þeir það, þá munu auðvitað fleiri fara í rafmagn og smám saman mun þessi innheimtuaðferð minnka og þeim bílum fækka. Ég held að við munum mjög seint sjá það að dísil- og bensínbílum verði algerlega útrýmt. Við búum í þannig vetrarlandi og við þurfum tæki og öflugar vélar til að sinna ýmsum verkefnum hér á landi. Ég er ekki að sjá að rafmagnið komi, alla vega ekki á næstu árum, alfarið í staðinn fyrir það. En þetta er auðvitað allt of skammur fyrirvari, hv. þingmaður.